KFC mót Víkings
Sæl veriði. Flottur dagur í dag og strákarnir stóðu
sig vel.
Næsta mót er dagana 4.-5. maí næstkomandi en það er KFC
mót Víkings.
Leikið verður í 5 manna liðum í fjórum
styrkleikaflokkum.
Áætlað er að hvert lið spili fimm 12 mínútna leiki
(fer eftir þátttöku), sem verða leiknir innan 2-3 klst. tímaramma. Engin
úrslitakeppni er á mótinu og eru allir sigurvegarar.
Innifalið í mótsgjaldi, sem er 2000 kr. pr.
þátttakenda, er KFC verðlaunapeningur og að sjálfsögðu KFC máltíð með drykk.
Ég var búinn að skrá 6 lið en miðað við þátttökuna
í dag þá vonast ég til að bæta við 1-2 liðum sem væri frábært.
Vinsamlegast skráðir ykkar drengi með því að setja
komment á facebook síðu eða senda mér tölvupóst. Vinsamlegast skráið fyrir
mánudaginn næsta, 29. apríl.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli