þriðjudagur, 23. apríl 2013

Dósasöfnun

Flösku- og dósasöfnun Fimmtudaginn 2. maí

Sæl öll,
við ætlum að taka eina flösku- og dósasöfnun til að safna meiri pening í sameiginlegan sjóð drengjanna okkar.

Dagsetning: Fimmtudagur 2. maí
Tímasetning: 16:45 - 18:30
Staðsetning: Fylkishöllin

Æfingin hjá yngri flokk byrjar kl. 17:00 og kl. 18:00 hjá eldri flokk, þannig að það er tilvalið að mæta með dósir þegar þið skutlið þeim á æfingu.

Meðlimir í foreldraráði taka á móti dósunum og koma þeim í endurvinnsluna. Gott væri ef það væri búið að flokka og telja í pokana.
Ef það er mikið sem þarf að telja þiggjum við aðstoð foreldra við þá vinnu.

Þetta er frábært tækifæri til að losna við flöskur og dósir úr geymslunni/bílskúrnum og hefja þannig vorhreingerninguna

Kv. Foreldraráð

Engin ummæli:

Skrifa ummæli